Jæja þegar ég vaknaði í morgun þá var fárviðri úti! Reyndar ekki
eins fyrir mig og flesta aðra því að ég er allavega búinn að
upplifa kuldann sem er úti áður en að ég fer út því að það er
allavega jafn kallt í herberginu mínu. Það er reyndar fínt að sofa
í kulda en ekki að fara á fætur. Þessu veðri er núna reyndar búið
að slota mikið.
Jæja síðasta helgi var góð. Henni var startað á Eyrinni og var
fengið sér í glas á föstudagskvöldið sumum var byrlað eiturlyf
öðrum ekki. Ég nefni engin nöfn en þau enda allavega á _ron og _ófí
en þetta eru einstaklingar sem voru á skemmtilstað og drukku bæði
úr glasi sem hafði verið boðið þeim. Hvorum aðilanum átti að nauðga
er ekki víst en þykir ekki vera lykil atriði.
Rúnar bauð heim til sín laugardagskvöldið sem var allt í lagi.
Mjög róleg stemning en ágætt samt. Það kvöld var langt en mjög
rólegt og nánast edrú.
Vinnuvikan fer ágætlega af stað. Það verður allataf aðeins meira
að gera dag frá degi en samt er ekkert alveg brjálað að gera
ennþá.
Ég fékk þá frábæru hugmynd í dag að fara einhverntíman í vetur
og fá eitthvað lið með uppá Þeystarreiki. Það gæti verið gaman.
Arsenal komu á óvart um helgina (kom auðvitað ekkert öllum á
óvart). Ég gat hvergi horft á leikinn og er ennþá að sleikja þau
sár.
Hvað á að gera næstu helgi? Fara á typpatal? Gæti verið gaman!
Enda bóndadagur hjá flestum, sumir fresta honum bara eftir
henntugleika sökum aðstæðna. Það þarf jú að gera karlmönnum dagamun
á þeirra dag!
Ps. Það var ekki ég sem héllt að typpatal væri síðustu
helgi!!!!!